Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 15 HÓPEFLI Nafnagisk TRAUST, AÐ KYNNAST, MINNI Tilgangur Leikurinn hjálpar þátttakendum að læra nöfn hvers annars og eflir athygli og skjót viðbrögð. Framkvæmd 1. Nemendum er skipt í tvo hópa. 2. Hóparnir setjast sitthvoru megin við teppi eða stórt áklæði sem haldið er uppi. 3. Hvor hópur velur einn þátttakanda sem sest fremst við teppið. 4. Þegar báðir eru tilbúnir er teppinu sleppt. 5. Sá sem fyrstur segir nafn hins fær stig fyrir sinn hóp. Leikurinn heldur áfram þar til ákveðinn stigafjöldi næst. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja að öll fái tækifæri til að taka þátt • minna á skýra framsögn nafna

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=