LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 14 NAFNALEIKUR | ÍSBRJÓTUR Nafn og dýr með hljóði HÓPEFLI, TRAUST, AÐ KYNNAST, HLUSTUN, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Leikurinn þjálfar nemendur í að muna nöfn og eflir tjáningu. Framkvæmd Hópurinn situr í hring (á gólfi eða í sætum eftir því hvað rýmið leyfir). 1. Fyrsti þátttakandi segir nafnið sitt, nefnir uppáhaldsdýrið sitt og gerir hljóð dýrsins. 2. Hópurinn endurtekur nafnið, dýrið og hljóðið saman. 3. Næsti þátttakandi við hliðina tekur við og þannig gengur leikurinn koll af kolli þar til öll hafa tekið þátt. Útfærslur • Endurtaka mjög rólega, mjög hátt, með gleði, með dramatískum raddblæ o.s.frv. • Bæta við einfaldri hreyfingu sem passar við dýrið. • Minnisútgáfa: Þegar nýr þátttakandi hefur kynnt sig er byrjað aftur frá byrjun og öll nöfn og dýr endurtekin í röð. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • skapa létt og öruggt andrúmsloft þar sem leikgleði er í forgrunni • sýna fordæmi með skýrri raddbeitingu og leikrænum tilþrifum • tryggja að hraðinn sé hæfilegur svo hópurinn nái að muna og endurtaka • styðja við feimin börn með rólegri hvatningu en virða mörk hvers og eins • minna á að hlusta vel á hvert annað svo nöfn og dýr skili sér rétt áfram
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=