Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 13 NAFNALEIKUR | ÍSBRJÓTUR Uppvakningurinn – Zombie TRAUST, AÐ KYNNAST, HLUSTUN, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Leikurinn þjálfar nemendur í að muna nöfn, skerpa athygli og viðbrögð í skemmtilegri eltingaleiksútgáfu. Framkvæmd Leikurinn er fyrir fimm eða fleiri. 1. Mikilvægt: Í þessum leik er bannað að hlaupa. Einungis má ganga hratt og örugglega. 2. Einn þátttakandi byrjar sem uppvakningur og hin dreifast um rýmið. 3. Uppvakningurinn gengur með hendurnar beint fram og reynir að ná einhverjum með því að klukka. 4. Til að „bjarga sér“ má þátttakandi kalla nafn á öðrum þátttakanda í rýminu ef að uppvakningurinn er alveg að fara að ná viðkomandi. Þá verður sá sem var kallaður næsti uppvakningur. 5. Ef þátttakandi nær ekki að kalla nafn áður en viðkomandi er klukkaður er hann úr leik og sest niður. Ef kallað er á nafn einhvers sem er þegar sestur niður, dettur sá sem kallaði einnig úr leik. Leiknum lýkur þegar tvö eru eftir. Þá má velja einfalt einvígi til að skera úr um hver er sigurvegari leiksins (t.d. skæri–blað–steinn). Hlutverk kennara Markmiðið er að: • tryggja að rýmið sé öruggt og laust við hindranir • minna á regluna um að ganga hratt en ekki hlaupa • brýna fyrir hópnum að snerting sé alltaf létt og að mörk hvers og eins séu virt • hvetja þátttakendur til að nota skýra rödd þegar kallað er nafn • halda uppi jákvæðu andrúmslofti þar sem leikgleði er í forgrunni fremur en sigur

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=