Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 12 NAFNALEIKUR | ÍSBRJÓTUR Nafn og hreyfing TRAUST, AÐ KYNNAST, ENDURTEKNING, TJÁNING, LÍKAMI, RÖDD Tilgangur Leikurinn hentar sérstaklega vel þegar hópur er að vinna saman í fyrsta sinn. Hann hjálpar þátttakendum að læra nöfn hvers annars en fyrst og fremst er þetta ísbrjótur og æfing í því að koma fram. Hér stígur hver einstaklingur fram í sviðsljósið í örstutta stund en verkefnið er einfalt og öll taka þátt. Mistök eru hluti af leiknum enda margar endurtekningar og ætlað til að hafa gaman. Framkvæmd Hópurinn stendur í hring. Gott er að kennari/leiðbeinandi byrji. 1. Einn þátttakandi stígur eitt skref inn í hringinn, segir nafnið sitt og gerir hreyfingu að eigin vali. Hreyfingin má vera hvernig sem er og það má bæta við hljóði ef áhugi er á því. 2. Allur hópurinn endurtekur nafnið í einu og hermir eftir hreyfingunni (og hljóðinu). 3. Næsti þátttakandi, t.d. við hliðina á þeim sem byrjaði, stígur inn og gerir það sama. 4. Haldið er áfram þar til öll hafa stigið inn í hringinn. Útfærslur • Raddblær: Nafninu er hvíslað, síðan kallað hátt, sagt reiðilega, sagt með gleði o.s.frv. • Minnisútgáfa: Eftir að nýr þátttakandi kynnir sig er byrjað á röðinni aftur frá byrjun (hratt) þannig að úr verður einskonar minnisleikur fyrir hópinn. • Stokka hringinn: Þegar öll hafa kynnt sig er hringnum blandað og prófað hvort nöfn og hreyfingar skili sér. • Hugmyndir frá hópnum: Hvetjið börnin til að búa til eigin útfærslur. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • skapa öruggt og jákvætt andrúmsloft þar sem mistök eru eðlilegur hluti af leiknum • sýna gott fordæmi með því að byrja leikinn af einlægni og leikgleði • hvetja til þess að bera orðin skýrt fram og hafa hreyfinguna vel sýnilega án þess að setja pressu á frammistöðu • tryggja að öll fái jafnt rými • styðja við þau sem eru feimin með rólegri hvatningu en virða jafnframt mörk hvers og eins

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=