Léttir leiklistarsmiðja (leiklist og hópefli)

LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 11 UPPHITUN Danseltingaleikur LÍKAMI, DANS, SAMVINNA, HREYFING Tilgangur Danseltingaleikur sameinar hreyfingu, leikgleði og samvinnu. Leikurinn hentar vel til upphitunar og skapar oft jákvætt andrúmsloft þar sem þátttakendur fá að prófa sig áfram með tjáningu og takti. Framkvæmd 1. Spilið upplífgandi tónlist (gott tækifæri að leyfa hópnum að velja, ef það hentar). 2. Veljið 2–3 þátttakendur til að „vera hann“ í einu. 3. Bannað er að hlaupa — einungis má ganga eins hratt og hægt er. 4. Þau sem „eru hann“ halda „klukk-höndinni“ fram og klukka með léttri snertingu. 5. Sá sem er klukkaður sest niður. 6. Þau sem eru enn á ferð geta frelsað þann sem situr með því að dansa fyrir framan viðkomandi í nokkrar sekúndur. Þá stendur sá sem var frelsaður upp og hermir eftir dansinum. 7. Bannað er að klukka á meðan verið er að frelsa (þ.e. á meðan dansað er). Útfærslur • Stutt tímabil: Leikið í 1–2 mínútur í senn og skiptið svo um þann sem eltir. • Þemu: „Dansið eins og …“ (robot, mjúkt, stormur, léttleiki o.s.frv.). • Tónlistarval: Hópurinn velur 2–3 lög og prófar ólíka stemningu. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • sjá til þess að reglan um „ekki hlaupa“ sé virt • tryggja öryggi og pláss til hreyfingar • minna á að snerting sé létt og virðingarrík • stýra orkustigi (hlé, skipti á hlutverkum, tímamörk)

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=