LÉTTIR – leiklistarsmiðja | © Borgarleikhúsið | Miðstöð menntunar og skólaþjónustu 2026 | 40799 10 UPPHITUN Zip–Zap–Boing – framhald HREYFILEIKUR, SAMVINNA, HLUSTUN, EINBEITING Random • Sá sem fær „Zip“ eða „Zap“ setur fingur upp og segir „Random“ (t.d. með leikrænum hreim eða tilburðum). • Allir ganga þá um rýmið í nokkrar sekúndur, bulla eða gera hljóð, og finna sér nýjan stað í hringnum. • Sá sem setti viðbótina af stað heldur leiknum áfram. Keila • Sá sem sendir af stað „keilu“ leikur eins og hann hendi ímyndaðri keilukúlu til hægri eða vinstri. • Sá sem er við hliðina hoppar til að forðast kúluna og svo hoppa allir koll af kolli áfram í hringnum. • Sá síðasti (sá sem sendi kúluna af stað) „grípur kúluna“ og hrópar „Fella!“, síðan heldur leikurinn áfram með „Zip“ eða „Zap“. Who let the dogs out • Sá sem á að gera hoppar inn í hringinn og hrópar „Who let the dogs out!“ • Hópurinn svarar: „Who, who, who, who!“ • Sá sem hoppaði inn, fer aftur inn í hringinn og heldur leiknum áfram. Hlutverk kennara Markmiðið er að: • halda takti og hraða í leiknum • minna á augnsamband og skýrar sendingar • hvetja til einbeitingar og virkrar þátttöku • aðlaga hraða að aldri og getu hópsins
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=