Leiðarvísir um upplestur, læsi og lestraraðferðir

Arfurinn LEYNDAMÁL GUÐVARÐAR 89 Eru viðbrögð konunnar skrýtin eða hvað? 56 kökur með kaffinu góðar og að hann sendi Hannes oftast heim með eina eða tvær í úlpuvasanum, af því það er svo slæmt að verða svangur á löngu ferðalagi. En hann vissi ekkert um fortíð Guðvarðar. Ekkert um fjölskyldu hans. Ekkert um líf hans fyrir utan stofuna sem núna hafði sokkið ofan í jörðina. – Nei, sagði Hannes í símann. Við þekktumst ekki vel. Ég veit ekkert um hann. – Nú, hann var einstæðingur, sagði konan. Þetta var orð sem margir höfðu notað um Guðvarð. – Ég veit það, sagði Hannes. En hvað meinarðu nákvæm- lega með því? Átti hann engin systkini eða svoleiðis? – Nei, engin systkini, sagði konan. Faðir hann lést fyrir mörgum árum – Guðvarður hefur bara verið um tvítugt þá. Og móðir hans var alltaf heilsuveil, það eru líka mörg ár síðan hún lést. Það voru engir afkomendur. – Ha? – Guðvarður átti engin börn. – Já, sagði Hannes. Mig grunaði það nú. – Einmitt, sagði konan þurrlega. En ég verð að biðja þig um að afsaka mig núna, ég er mjög upptekin og ef það var ekkert fleira … Auðvitað var eitthvað fleira. Hannes dauðlangaði til að skamma þessa konu fyrir að hafa komið honum í allt þetta vesen. Hann langaði til að spyrja hvernig hún þekkti Guð- varð og hvort hún hafi vitað til þess að Guðvarður væri mikið að galdra svona í frístundum. Umræða um orðið „ein- stæðingur“ … að standa einn. Vísbendingar um merkingu orðsins er að finna í næstu línum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=