Leiklist í kennslu

Þessi bók fjallar um leiklist sem kennsluaðferð. Henni er ætlað að vera hjálpartæki fyrir kennara við sköpun aðstæðna þar sem nemendur fá tækifæri til að skapa, túlka og tjá eigin hugmyndir og annarra. Leiklist í kennslu stuðlar að sjálfstæði nemenda. Ekki er nauðsynlegt að kennarar hafi formlega menntun í þessum fræðum heldur á bókin að vera aðgengileg öllum. Við gerð hennar og útfærslu hugmynda á vef hafa höfundar það að leiðarljósi að kennslufræðilegt ferli leiði til jákvæðrar reynslu. Sérstaða og eiginleikar leikrænnar reynslu bjóða upp á einstaka námsmöguleika. Nemendur ganga inn í ímyndaðan heim og takast á við margvísleg hlutverk, þeir lifa sig inn í aðstæður og verða að taka sjálfstæðar ákvarðanir og bera ábyrgð á afleiðingum þeirra. Anna Jeppesen er kennari við Kennaraháskóla Íslands. Hún hefur um árabil kennt kennaranemum að nýta aðferðir leiklistar í kennslu. Anna hefur mikla og fjölbreytta reynslu af leiklistarvinnu með börnum og unglingum. Ása Helga Ragnarsdóttir er verkefnisstjóri í leiklist í kennslu við Háteigsskóla en skólinn er móðurskóli í leiklist. Hún hefur víðtæka reynslu af leiklist í skólastarfi og hefur kennt leiklist í áratugi. Á s a H e l g a o g A n n a J e p p e s e n LEIKLIST Í KENNSLU 40677

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=