Láki Máni og montrassinn

4 Isspiss – Ertu smákrakki? Montrassinn hlær. – Hefur þú komið til útlanda? spyr Láki Máni þá. – Auðvitað. Ég hef komið í allar álfurnar. Ég hef verið í Afríku, Ameríku og Asíu, gortar hann. – Ég hef komið til Akureyrar. Það byrjar líka á A, segir Láki Máni. – Isspiss. Akureyri er ekki útlönd, segir montrassinn og hlær. – Það er alla vega langt í burtu, galar Láki. Hann fer inn og skellir fast á eftir sér. Af hverju skellir Láki Máni fast á eftir sér?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=