Láki Máni og montrassinn

2 Hver flytur inn í næsta hús? Dóni – Það er nýtt fólk í næsta húsi, segir mamma. Strákur á þínum aldri, Láki. Mamma hans er svo hugguleg kona. Strákurinn heitir Mikael Már. Þau eru að flytja heim frá Ameríku. – Ég veit. Hann er með mér í bekk, svarar Láki. – En gaman. Kannski verður hann vinur þinn? segir pabbi. Þig vantar nú vini, Láki minn. Alvöru vini. – Nei. Hann er dóni og montrass. Mig vantar ekki vini. Ég er fínn með sjálfum mér.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=