Láki Máni og montrassinn

1 Hvað er Láki Máni að gera? Njósnari Láki Máni felur sig á bak við gardínu. Hann fylgist með fólki sem flytur inn í næsta hús. Þetta er dularfullt fólk. Svört sólgleraugu. Samt er ekki sólskin. Sportbílar. Bátur. Þarna er strákur með krullur. Hann er á svipuðum aldri og Láki Máni. Strákurinn sér Láka í glugganum. – Halló, njósnari! hrópar strákurinn og ullar. Láki lætur sig hverfa. Dóni að reka út úr sér tunguna. Láki Máni má alveg góna út um sinn eigin glugga.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=