Láki Máni og montrassinn

16 Með hverjum hefur Láki Máni synt? Sund Montrassinn eltir Láka Mána. – Ég hef synt með höfrungum, segir montrassinn. – Gott hjá þér, muldrar Láki. – Hefur þú synt með höfrungum? – Nei, svarar Láki og hugsar sig um. En ég hef synt í fjallatjörn. Þá synti ég með brunnklukkum. Þær festust við fæturna á mér. Það þurfti að plokka þær af.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=