Láki Máni og letikeppurinn

Til kennara og foreldra! Í Smábókaflokki Menntamálastofnunar eru bækur sem ætlað er að vekja lestraráhuga yngstu barnanna og veita þeim þjálfun í lestri. Leitast er við að höfða til ólíkra áhugasviða með texta sem er innihaldsríkur þrátt fyrir einfalda framsetningu. Lögð er áhersla á að sögurnar höfði jafnt til tilfinninga og rökhugsunar og ekki síst kímnigáfu lesenda. Bækurnar eru allar 24 blaðsíður og því auðvelt að ljúka við lestur bókar. Á vefsíðunni Íslenska fyrir yngsta stig – veftorg eru fjölbreyttar kennsluhugmyndir með bókunum sem henta bæði í einstaklings- og hópvinnu og þangað má sækja verkefni með söguni til að prenta út. Áður en bókin er lesin Áður en lestur hefst ættu nemendur að skoða bókina, ræða um hana og kynna sér • hver er höfundur hennar • hver hefur teiknað myndirnar • hvað bókin heitir, þ.e. titill • um hvað hún fjallar Einnig ættu nemendur að skoða vel myndirnar og gera sér í hugarlund hvað gerist í sögunni, hvar hún fer fram, hver atburðarásin er, hvaða persónur sjást á myndunum o.s.frv. Minnast nemendur þess að hafa lesið aðra bók um Láka? Hvað heitir sú bók? Umræðuefni heima og í skólanum Leti. Af hverju nennir Láki ekki að lesa? Hvernig læknaðist hann af lestrarletinni? Hvernig getur leti leitt mann í ógöngur, sbr. hjálp letikeppsins? Lestur. Hvers konar bækur finnst nemendum skemmtilegast að lesa? Af hverju? Hvernig bækur vildu systur Láka lesa? Hvernig ætli heimurinn væri ef engar bækur væru til? Af hverju voru foreldrar Láka alltaf að tuða í honum að lesa? Frásögn og ritun • Skoðaðu dagblöð og klipptu út þrjár myndir af áhugaverðum bókum eða tímaritum. Útskýrðu af hverju þér finnst þær áhugaverðar. • Teiknaðu hring á blað og skrifaðu heiti uppáhaldsbókarinnar þinnar í hringinn. Skrifaðu eða teiknaðu svo allt sem þú veist um bókina í kringum hringinn. • Segðu vini eða vinkonu um hvað sagan um Láka er. Þú skalt undirbúa þig vel og hugsa um hvað þú ætlar að segja fyrst, hvað næst og hvernig þú ætlar að enda frásögnina.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=