Láki Máni og letikeppurinn

16 Bull Aftur blæs Hrekkur yfir síðurnar. Hann réttir Láka bókina. Láki Máni les: – Rauðu drekarnir finnast líka villtir í hrauni. Þeir kallast hraundrekar. Þeir spúa eldi. – Hvaða bull er þetta? tautar Láki. – Ekkert bull. Svona er þetta bara á Íslandi, segir Hrekkur. Hann hrifsar bókina og les áfram. Hann les um gosdverga í eldfjöllum, sundmýs í laugunum og flughesta í Skagafirði.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=