Læstur inni

Til kennara Reynslan hefur sýnt að sum börn þarfnast skipulegrar þjálfunar í að lesa samhljóðasambönd í orðum til að þau nái góðri lestrarleikni. Tilgangur þessarar smábókar er tvíþættur, að vekja lestraráhuga og að þjálfa nemendur í að lesa orð með samhljóðasamböndum. Við gerð hennar er lögð áhersla á að velja orð með st-, str- og strj- . Flest orðin í textanum eru börnunum kunnug og lögð er áhersla á að myndefnið styðji vel við textann. Hér að neðan eru nokkrar ábendingar um notkun. Forspá/umræður. Nemendur og kennari skoða bókina og ræða efni hennar út frá titli, kaflaheitum og myndum. Lögð er áhersla á að nota orðin sem koma fyrir í textanum. Orðaforði. Orð, sem barnið skilur e.t.v. ekki, útskýrð. Dæmi: stama, stara, strjúka, stjúpi, stika, leistar, kústur, út og suður. Fundin sam- heiti og andheiti. Hljóðgreining. Kennari segir orð, barnið hlustar eftir tilteknu sam- hljóðasambandi. Hvar er það í orðinu? Æskilegt er að nota fleiri orð en eru í textanum. Orðalestur. Kennari skrifar samhljóðasambandsorðin á lítil spjöld og æfir nemendur í að lesa þau stök. Auðvelda má lesturinn með því að búta orðin í lesbúta. Dæmi: sta-fur . Sum börn þurfa e.t.v. æfingu í að lesa líka önnur orð í textanum, sjá orðakassa á bls. 16. Þar eru m.a. orð með tvöföldum samhljóða, samsett orð og orð með öðrum samhljóðasamböndum, þ. á m. sk- orð sem komin eru í bók 1. Lestur. Sagan lesin. Vakin athygli á spurningunum neðst á hverri síðu sem eru ætlaðar til að skerpa athygli og auka lesskilning. Ritun. Nemandi finnur orð í sögunni sem byrja á st-, str-, strj-, orð með st í og sem enda á st . Venjulega er nóg fyrir barnið að fást við eina opnu bókarinnnar í senn. Orðin skrifar barnið í eigin bók og strikar t.d. undir samhljóðasambandið. Úrvinnsla. Barnið velur st- orð til að myndskreyta, finnur st- orð sem eru ekki í bókinni og skrifar þau, merkir t.d. við sniðugasta orðið, leiðinleg orð, falleg, stutt, löng o.s.frv.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=