Kynningarskrá 2025

38 Danska | öll aldursstig Erlend tungumál Fjölbreyttir kennsluhættir í dönsku | K | K Megintilgangur tungumálanáms er að nemendur öðlist alhliða hæfni til að nota tungumálið sem lifandi verkfæri í fjölbreyttum tilgangi og við ólíkar aðstæður. Til að stuðla að því er mikilvægt að vera með fjölbreytta kennsluhætti sem eru hvetjandi og styðja við nemendur þannig að þau eigi auðveldara með að ná þeim hæfniviðmiðum sem stefnt er að. Markmið þessarar handbókar er að varpa ljósi á meginþætti tungumálanáms og benda á leiðir til að vinna með fjölbreytta kennsluhætti. Fjallað er um alla færniþættina í samræmi við aðalnámskrá og settar fram tillögur að fjölbreyttum kennsluaðferðum og verkefnum. Einnig er fjallað um hvernig vinna má með orðaforða, málfræði, myndefni, kvikmyndir, tónlist og námsmat í tungumálanámi. Handbókin styður við faglegt starf og veitir innblástur í fjölbreytta og lifandi kennslu. Fjölbreyttir kennsluhættir í dönsku Erna Jessen HUGMYNDIR FYRIR ÞIG

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=