SAMFÉLAGSGREINAR 74 KRISTIN TRÚ Bókin Kristin trú er ætluð til trúarbragðafræðslu á miðstigi grunnskóla. Kristni er líkt og önnur trúarbrögð margbreytileg en hér er gerð grein fyrir lúterskri mótmælendatrú eins og hún er þekkt hér á landi. Fjallað er um hver helsti boðskapur kristninnar er og hvernig hún hefur áhrif á daglegt líf fólks, hvort sem er í hversdagsleikanum, á hátíðum eða á sérstökum gleði- eða sorgarstundum. Kennsleiðbeiningar eru á vef. Bókin er einnig til í rafrænni útgáfu. TRÚARBRAGÐAVEFURINN Trúarbragðavefurinn kemur til móts við vaxandi fjölmenningu í samfélaginu með það markmið að draga úr fordómum og bæta samskipti manna á milli. Trúarbrögð eru mikilvægur þáttur í allri menningu og áríðandi að börn jafnt sem fullorðnir tileinki sér umburðarlyndi gagnvart gildum annarra. Á vefnum er að finna kynningu á fimm af áhrifamestu trúarbrögðum heims, gagnvirk verkefni, tenglasöfn og vefleiðangur. PÁSKAVEFUR OG JÓLAVEFUR Á páskavefnum má finna fróðlegar upplýsingar um ýmislegt er tengist páskahátíðinni. Á jólavefnum má finna jólasögur og margs konar fróðleik sem tengist aðventunni og jólahátíðinni. GOÐSAGNIR OG ÍSLENDINGASÖGUR Goðsagnir: Það er sama hvert litið er á Íslandi, alls staðar eru bókmenntirnar nálægar. Land, sem í krafti einstæðs landslags skrifar sjálft sínar eigin sögur. Íslendingasögur: Á 13. öld var farið að skrásetja sögu landnámsmanna og þessar frásagnir, Íslendingasögurnar, eru enn með verðmætustu dýrgripum íslenskrar sögu. Þær fjalla um ást, átthagabönd, hefnd og dauða. Fræðslumyndin hentar til kennslu í trúarbragðafræði, samfélagsgreinum og íslensku. TRÚARBRAGÐAFRÆÐI
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=