Kynningarskrá 2024

SAMFÉLAGSGREINAR 72 FJALLKONAN Nælur fundust í urð við læk ekki langt frá Vestdalsvatni ofan við Seyðisfjörð sumarið 2004 Í framhaldi af því var staðurinn rannsakaður og fundust þá líkamsleifar konu sem taldar eru vera frá tíundu öld ÍSLENSKA ULLIN Fræðslumyndin um íslensku ullina fjallar um helstu eiginleika, meðferð, vinnslu og fjölbreytt notagildi hennar í fortíð og nútíð FERÐALOK Sex þættir um Íslendingasögurnar og sannleiksgildi þeirra frá sjónarhóli fornleifafræði og bókmennta Farið er yfir valda atburði úr Íslendingasögunum og þeir tengdir við fornminjar og gripi sem enn eru til HLJÓÐSPOR Dægurtónlistin óx úr grasi á 20 öld ríkulega nærð á auglýsingum og sölumennsku Tónlist hefur jafnan þrifist best á tískusveiflum og sífelldum nýjungum Saga dægurtónlistar er rakin í þessari bók, allt frá myrkviðum Afríku til Bandaríkjanna, meginlands Evrópu og hingað upp til Íslands Kennarabók fæst og hlustunarefni á læstu svæði kennara Verkefni eru til útprentunar á vef DÆGURSPOR Systurbók Hljóðspora, sem sagði sögu af blús og rokki, heldur sig við dægurtónlist alls konar en segir um leið frá tíðaranda og tísku eins og Hljóðsporin Í báðum bókum er því heilmikil menningarsaga og samfélagsfræði Með Dægursporum fylgja kennsluleiðbeiningar og verkefni á vef ásamt hlustunarefni á læstu svæði kennara Dægurspor Í þessari bók eru rakin spor dægurtónlistar allt frá bænda- og hirðdönsum miðalda til stórsveita eftirstríðsára og danshljómsveita 6. áratugar. Komið er við í Vínarborg þar sem valsinn dunaði snemma á 19. öld og fór eins og eldur í sinu um hinn vestræna heim. Þá er fjallað um polka, óperettur, lúðrasveitir, ragtime, djass, tangó, revíur, söngflokka, stríðsáratónlist og íslensk sjómanna- og síldarlög. Dægurspor binda sig ekki við tónlist heldur skoða einnig tíðaranda, hin margvíslegu litbrigði mannlífsins. Nefna má rómantíkina, fallega tímabilið, vesturferðir, suðupott ólíkra þjóðabrota í New Orleans, jarðveg þann sem tangóinn spratt úr en einnig það samfélag á Íslandi sem gat af sér M.A. kvartettinn, Litlu fluguna, Ingibjörgu Þorbergs, Jónas og Jón Múla, Eyjalögin, Hauk, Ellý, Ragnar og KK-sextettinn. Dægurspor er systurbók Hljóðspora sem kom út árið 2007. Sú bók fjallaði um blús og rokk, rætur og afsprengi þeirra fyrirbæra. Dægursporum fylgir öflugt kennaraefni á vef Menntamálastofnunar. Einnig hlustunarefni og verkefni á vef. Þetta námsefni er einkum ætlað mið- og unglingastigi. 7120 Pétur Hafþór Jónsson ægurspor D ♪ ♪ ♫ Dægurspor Pétur Hafþór Jónsson 1 Dægurspor Í þessari bók eru rakin spor dægurtónlistar allt frá bænda- og hirðdönsum miðalda til stórsveita eftirstríðsára og danshljómsveita 6. áratugar. Komið er við í Vínarborg þar sem valsinn dunaði snemma á 19. öld og fór eins og eldur í sinu um hinn vestræna heim. Þá er fjallað um polka, óperettur, lúðrasveitir, ragtime, djass, tangó, revíur, söngflokka, stríðsáratónlist og íslensk sjómanna- og síldarlög. Dægurspor binda sig ekki við tónlist heldur skoða einnig tíðaranda, hin margvíslegu litbrigði mannlífsins. Nefna má rómantíkina, fallega tímabilið, vesturferðir, suðupott ólíkra þjóðabrota í New Orleans, jarðveg þann sem tangóinn spratt úr en einnig það samfélag á Íslandi sem gat af sér M.A. kvartettinn, Litlu fluguna, Ingibjörgu Þorbergs, Jónas og Jón Múla, Eyjalögin, Hauk, Ellý, Ragnar og KK-sextettinn. Dægurspor er systurbók Hljóðspora sem kom út árið 2007. Sú bók fjallaði um blús og rokk, rætur og afsprengi þeirra fyrirbæra. Dægursporum fylgir öflugt kennaraefni á vef Menntamálastofnunar. Einnig hlustunarefni og verkefni á vef. Þetta námsefni er einkum ætlað mið- og unglingastigi. 7120 Pétur Hafþór Jónsson ægurspor D ♪ ♪ ♫ Dægurspor Pétur Hafþór Jónsson VERKEFNI ÖLL STIG SAGA UNGLINGASTIG SAGA – TÓNMENNT FRÆÐSLUMYNDIR

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=