Kynningarskrá 2024

SAMFÉLAGSGREINAR 67 YNGSTA STIG FRÆÐSLUMYNDIR HJÓLUM OG NJÓTUM! HJÓLUM MEIRA OG NJÓTUM! Fræðslumyndir um hjólreiðar fyrir yngsta og miðstig grunnskóla Í myndunum er fjallað um hjólreiðar sem heilsusamlegan og vistvænan ferðamáta og leiðbeint um ýmis atriði í sambandi við öryggi hjólandi vegfarenda í umferðinni Kennsluleiðbeiningar eru á vef VEGURINN HEIM Heimildarmynd um fjölmenningu á Íslandi, byggð á viðtölum við börn innflytjenda Í myndinni ræða börnin líf sitt og tilveru hér á landi og lýsa upplifun sinni af því að vera á mörkum ólíkra menningarheima Kennsluleiðbeiningar eru á vef KATLA GAMLA Leikin mynd um einelti og fyrirgefningu, með myndinni fylgja kennsluhugmyndir MYNDAMÁTTUR Heildstætt þemaverkefni sem kallast Myndamáttur og er sjónræn og þátttökumiðuð kennsluaðferð Efnið byggist á kennslu- og rannsóknaraðferð sem ber enska heitið photovoice og hefur það markmið að efla raddir ólíkra samfélagshópa með aðstoð ljósmynda Unnið er með fjölbreytt og skapandi ljósmyndaverkefni þar sem áhersla er lögð á að efla gagnrýna hugsun með mynd- og rýmislæsi nemenda Í því felst að skoða hvernig bæði myndrænt og eiginlegt nærumhverfi nemenda getur haft mismunandi áhrif á einstaklinga og hópa Rauði þráðurinn er að styrkja rödd ungs fólks og skapa þeim vettvang til að miðla ólíkri reynslu og upplifunum Hægt er að vinna með efnið þvert á námsgreinar og aldursstig og út frá mismunandi áhersluatriðum LAGT Í VÖRÐUNA Tilgangur kennsluefnisins Geðorðin 10 – Lagt í vörðuna er að leitast við að leggja grunn að vellíðan nemenda og kenna þeim aðferðir til að takast á við andlega vanlíðan áður en hún hefur áhrif á líf þeirra Til að stuðla að árangursríkri og viðvarandi heilsueflingu þarf einstaklingurinn sjálfur að hafa áhrif og vera virkur þátttakandi í ferlinu Efnið er byggt á verkefninu „Geðrækt“ sem Embætti landlæknis stóð fyrir Geðorðin 10 eru tíu setningar sem minna á hvað við getum sjálf gert daglega til að efla og bæta geðheilsuna Unnið er með eitt geðorð í einu og áhersla á samvinnu og samtal MYNDAMÁTTUR GEÐORÐIN 10 LAGT Í VÖRÐUNA

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=