Kynningarskrá 2024

SAMFÉLAGSGREINAR 64 ÉG OG SJÁLFSMYNDIN Í bókinni Ég og sjálfsmyndin er fjallað um ýmislegt í nærumhverfi nemandans Hún skiptist í 8 sjálfstæða kafla Einn kaflinn fjallar um sjálfsmyndina og velt er upp spurningunni hver er ég og af hverju er ég eins og ég er Síðan tekur við umfjöllun um félagsmótun, helstu félagsmótunaraðila og hópa sem við tilheyrum Þarnæst er fjallað um lýðheilsumál eins og mataræði, hreyfingu og svefn og áhrif þessara þátta á andlega líðan Kynþroski og klám fá sína umfjöllun, svo og ýmis vandamál í nærumhverfinu svo sem ofbeldi og vímuefni Bókin endar síðan á stuttum kafla með hugleiðingum um hvað þú vilt verða en starfs- og menntunarmöguleikar hafa aldrei verið jafn fjölbreyttir og nú á dögum Kennsluleiðbeiningar fylgja á vef MMS ÉG OG SAMFÉLAGIÐ Í bókinni Ég og samfélagið er fjallað um það að búa í samfélagi Bókin skiptist í 9 sjálfstæða kafla Eitt af því sem við eigum öll sameiginlegt, sama hvar við búum í heiminum, er að tilheyra samfélögum Sum þeirra eru agnarsmá eins og til dæmis fjölskyldan meðan önnur eru miklu stærri Öll hafa þessi samfélög áhrif á hver við erum og hvernig við hegðum okkur Við höfum líka áhrif á samfélög okkar, reyndar mismikið eftir því hversu stór þau eru Fjölskyldan hefur til dæmis mikil áhrif á hver og hvernig við erum en við gjörbreyttum líka lífi fjölskyldunnar þegar við fæddumst Allt líf á jörðinni tilheyrir samfélögum en hér er aðallega verið að skoða samfélög sem nemendur tilheyra og áhrif þeirra Með samanburði við íslensk samfélög fyrr á tímum og aðra menningarheima er meðal annars leitað svara við eftirfarandi spurningum: Hvaðan fáum við upplýsingar um það sem er að gerast umhverfis okkur? Hvað eru samfélagsmiðlar? Má segja hvað sem er eða birta myndir af vinum á netinu? Af hverju ráða sumir meiru en aðrir? Hver býr til reglur sem við þurfum öll að fara eftir? Eru reglur eins alls staðar í heiminum? STOPP OFBELDI! Kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni á hvergi að eiga sér stað í íslensku samfélagi Með forvörnum er leitast við að fyrirbyggja kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni og draga úr þeim skaða sem slík háttsemi hefur á þolendur og aðstandendur þeirra Á vefnum Stopp ofbeldi! er að finna hugmyndir að fræðsluefni fyrir börn, foreldra og starfsfólk um kynbundið ofbeldi og áreiti Listinn er settur saman út frá aldri barna en að sjálfsögðu getur margt af efninu hentað hinum ýmsu skólastigum Það er flokkað í efni fyrir börn í leikskóla og yngstu börn í grunnskóla, nemendur á miðstigi, unglingadeild og framhaldsskóla Bækur sem bent er á er bæði hægt að kaupa hjá bóksölum og fá þær að láni á bókasöfnum LÍFSLEIKNI NÝTT

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=