Kynningarskrá 2024

LIST- OG VERKGREINAR 34 TÓNMENNT TÓNLIST OG … TÓNLIST OG AFRÍKA Í þessari bók kynnast nemendur tónlist frá Afríku Þeir hlusta á afríska tónlist, læra afrísk lög og dansa Í bókinni er kynning á afrískum hljóðfærum og því hvernig á að búa til slík hljóðfæri Efnið er einkum ætlað nemendum í 3 –4 bekk þótt vissir hlutar þess henti einnig bæði yngri og eldri nemendum TÓNLIST OG UMHVERFI Í bókinni er unnið með tónlist og umhverfi á fjölbreytilegan hátt, með söng, leik, hreyfingu, hlustun og skriflegum verkefnum Efnið á að hvetja börn til að gefa gaum að umhverfi sínu, ekki síst hljóðheiminum Það er einkum ætlað nemendum í 1 –2 bekk TÓNLIST OG LÍKAMINN Bókin skiptist í kafla sem hver og einn fjallar um eitt líffæri eða skynfæri líkamans s s hjartað, heyrn og sjón Tengingar á milli tónlistar og líkamans eru margar Hægt er að búa til tónlist án hljóðfæra með kroppaklappi og stappi, auk raddarinnar Efnið er einkum ætlað nemendum í 1 –2 bekk TÓNLIST OG TÍMINN Í námsefninu er mikilvægi tímans í tónlist kynnt og samspil tímans og náttúrunnar skoðað Unnið er með sönglög frá ýmsum heimshornum og áhersla lögð á að miðla þeim með hlustun og endurtekningu Efnið er einkum ætlað nemendum í 3 –4 bekk Í kennsluleiðbeiningum á vef eru verkefni til útprentunar Kennsluleiðbeiningar fylgja öllum bókunum og hlustunarefni má finna á læstu svæði kennara, sjá mms is og umhverfi KENNARABÓK og umhverfi og umhverfi Pétur Hafþór Jónsson og Þórdís Sævarsdóttir Teikningar Pétur Atli Antonsson Tónlistin er hluti af öllu sem er. Hún er í hjarta okkar, hugsunum og tilfinningum. Tónlistin er í umhverfinu, náttúrunni og jafnvel geimnum. Hún leikur stórt hlutverk í lífi okkar á hverjum degi. Þetta námsefni fjallar um tónlist og umhverfi. Um það hvernig tónlistin kemur til okkar úr ýmsum áttum og hvernig við getum búið hana til á svo margan hátt. Námsefnið Tónlist og umhverfi er hluti af bókaflokki í tónmennt fyrir yngsta stig grunnskóla. Það samanstendur af nemendabók, kennarabók og hlustunarefni. 7187 KENNARABÓK og líkaminn og líkaminn Líkami þinn er hljóðfæri. Með honum getur þú búið til allskonar hljóð. Þú getur sungið, klappað, stappað og gert margt fleira sem gaman er að heyra. Þú notar líka líkamann til að hlusta á hljóð og tóna. Í þessu námsefni er líkaminn notaður til að læra um tónlist, skynja hana og skapa. Námsefnið Tónlist og líkaminn er hluti af bókaflokki í tónmennt fyrir yngsta stig grunnskóla. Það samanstendur af nemendabók, kennarabók og hlustunarefni. Ólafur Schram og Skúli Gestsson Teikningar Íris Auður Jónsdóttir 7402 og líkaminn

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=