Kynningarskrá 2024

29 ÍSLENSKA SEM ANNAÐ TUNGUMÁL HITT OG ÞETTA Einnota bók ætluð nemendum með íslensku sem annað tungumál en hafa náð nokkurri færni í íslensku. Henni er ætlað að efla orðaforða þeirra og bæta lesskilning. Efnið er einnig til á vef ásamt hljóðbók. LÆRUM GOTT MÁL 1.–5. HEFTI Fimm vinnubækur, einkum ætlaðar nemendum á unglingastigi sem ekki geta nýtt sér almennt námsefni í íslensku. Kennsluleiðbeiningar fylgja. MÁLFRÆÐIBÓKIN MÍN 1, 2 OG 3 Námsefnið samanstendur af þremur heftum sem eru samin fyrir börn með íslensku sem annað tungumál og hafa náð allgóðri færni í íslensku. Efnið er einkum ætlað nemendum á unglingastigi grunnskólans. SKÓLABLAÐIÐ Gagnvirkur vefur sem er fyrst og fremst ætlað að æfa nemendur í daglegu máli. Megináherslan er á hlustun og skilning en einnig málnotkun og málfræði. ÖLL SKÓLASTIG ÖLL SKÓLASTIG BÆKUR Á TÁKNMÁLI Á þessum vef má finna bækur úr Smábókaflokki og bókaflokknum Komdu og skoðaðu þýddar á táknmál heyrnarlausra. TÁKNMÁLSLEIKIR 1 OG 2 - CD Tvö kennsluforrit sem eru ætluð heyrnarlausum og heyrnarskertum börnum á aldrinum 4–7 ára og foreldrum þeirra. Á geisladiskinum eru verkefni bæði fyrir börn og foreldra. UPP MEÐ HENDUR Verkefnabók í táknmáli fyrir börn sem vilja læra táknmál. Í bókinni eru fjölbreytt verkefni til að lita, líma og leysa ýmsar þrautir. Kennsluleiðbeiningar og talnatákn til ljósritunar eru á vef. Upp með hendur – Vefur sem þjónar sama markmiði og samnefnd bók. ÖLL SKÓLASTIG ÍSLENSKT TÁKNMÁL

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=