25 UNGLINGASTIG ÍSLENSKA UNGLINGASTIG BRAGFRÆÐI Í Bragfræðinni er að finna helstu bragreglurnar. Hver kafli fjallar um ákveðinn þátt bragfræðinnar á skýran og einfaldan máta. Kennsluleiðbeiningar eru á vef. Í Limruheftinu er að finna leiðbeiningar við gerð á limrum. Bókin er einkum ætluð nemendum á unglingastigi en kverið ætti einnig að geta nýst bæði yngri og eldri sem hafa gaman af skáldskap og vísnagerð. MÁLVÍSIR – HANDBÓK Í MÁLFRÆÐI FYRIR UNGLINGASTIG Handbók um íslenska málfræði fyrir efri bekki grunnskólans. Bókin auðveldar nemendum leit að málfræðihugtökum í íslensku. Í henni er jafnframt að finna gagnlegar ábendingar um nýyrði, slettur og tökuorð svo eitthvað sé nefnt. HUGFINNUR, HANDBÓK UM BÓKMENNTAHUGTÖK Handbók sem hefur að geyma skilgreiningar og dæmi um algeng bókmenntahugtök. SÍGILDAR SKÁLDSÖGUR Flokkur bóka þar sem þekktar skáldsögur eru endursagðar. Hljóðbækur eru á vef með nokkrum bókanna. Baskerville hundurinn, Hvítklædda konan, Brennu-Njáls saga 1 og 2, Rómeó og Júlía, Fýkur yfir hæðir, Silas Marner, Glæstar vonir, Innrásin frá Mars, og Egils saga. GJALLARHORNIÐ Gjallarhornið er þemahefti í íslensku. Nemendur setja sig í spor þeirra sem vinna við fjölmiðla og þeim gefinn kostur á að útbúa í sameiningu eigin fjölmiðil. Hver og einn velur verkefni eftir áhuga og allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi þar sem unnið er með ólík færnisvið. Kennsluleiðbeiningar fylgja á vef.
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=