Kynningarskrá 2024

12 SMÁBÆKUR KRÆFIR KRAKKAR Smábækur er bókaflokkur ætlaður börnum sem eru að ná tökum á lestri Sögurnar eru fjölbreyttar og skiptast í fjóra flokka eftir þyngd, sjá lista yfir lestrarbækur á vef Lögð er áhersla á að bækurnar höfði til tilfinninga og rökhugsunar og síðast en ekki síst til kímnigáfu lesenda Í átta smábókum er áhersla lögð á að æfa markvisst samhljóðasambönd í léttum og spennandi sögum Með hverri sögu eru alls sex verkefni sem kennarar geta valið úr eftir þörfum og prentað út • Á safnvefnum Smábók er hægt að nálgast öll verkefni sem fylgja smábókaflokknum sem og lestrarbækur á rafbókarformi • Smábókaskápurinn er gagnvirkur vefur þar sem velja má á milli 9 smábóka Markmiðið er að þjálfa lestur, efla lesskilning og lestraráhuga Börnin geta ýmist lesið textann beint af skjá eða hlustað og fylgst með honum fyrst og lesið svo sjálf Á hverri blaðsíðu eru spurningar úr textanum og lítið verkefni • Hægt er að panta myndaspjöld sem fylgja smábókunum Græni gaukurinn, Skrýtinn dagur hjá Gunnari og Drekadansinn Þeim er ætlað að þjálfa nemendur í skipulegri frásögn og ritun Skemmtilegar sögur um krakka sem lenda í spennandi ævintýrum Um er að ræða lestrarbækur á teiknimyndasöguformi sem er ætlað að vekja lestrargleði og áhuga Aftast í bókunum eru verkefni sem nemendur geta unnið í samvinnu ÍSLENSKA YNGSTA STIG NÝTT NÝTT

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=