Kynningarskrá 2023

YNGSTA STIG STÆRÐFRÆÐI YNGSTA STIG 79 STÆRÐFRÆÐISPÆJARAR 1, 2 OG 3 Stærðfræðispæjarar 1, 2 og 3 er ítarefni í stærðfræði fyrir yngsta stig en getur einnig nýst vel inn í kennslu og nám margbreytilegra nemendahópa Bókunum er skipt upp í fimm kafla, í takt við aðalnámskrá grunnskóla: tölur, rúmfræði og form, reikningur, mælingar og tölfræði og hnitakerfi Námsefnið nýtist vel til að uppfylla almenn viðmið um stærðfræðilega hæfni þe að geta spurt og svarað með stærðfræði, að kunna að fara með tungumál og verkfæri stærðfræðinnar og vinnubrögð og beiting hennar Auk þess ættu verkefnin einnig að geta mætt þjálfun lykilhæfniþátta aðalnámskrár Ýmiss konar leiðir til þess að uppfylla þessa þætti eru kynntar í kennsluleiðbeiningum Kennsluleiðbeiningar spila stórt hlutverk þegar Stærðfræðispæjarar eru nýttir í kennslu Þar er að finna: • hugmyndir að leiðum til að kynna nýtt viðfangsefni í upphafi kafla • hugmyndir að innlögn og þjálfun við hverja opnu • hugmyndir að verkefnum til að vinna í spæjarabókina • hugmyndir að verkefnunum af borði á gólf • meira og fleira, enn fleiri hugmyndir að verkefnum sem oft eru samþætt við aðrar námsgreinar eins og íslensku, útikennslu, listgreinar, upplýsingatækni og hreyfingu Verkefni við spæjarabók og af borði á gólf eru til þess gerð að flétta enn betur lykilhæfni og hæfniviðmiðum um hæfni á ólíkum sviðum stærðfræðinnar inn í kennslu Táknin eru á víð og dreif í nemendabókinni en hugmyndir að verkefnum við þau eru í kennsluleiðbeiningum Verkefnin við spæjarabók eru unnin í ,,spæjarabókina“ sem er hugsuð sem verkefnabók með auðum blaðsíðum Verkefnin við Af borði á gólf eru útfærð sem bókarlaus verkefni STÆRÐFRÆÐISPÆJARAR 4 Stærðfræðispæjarar 4 er væntanleg 5642 Vala, Róbert og Mosi eru stærðfræðispæjarar sem leiða þig áfram í að rannsaka stærðfræðiverkefni með aðstoð kennarans. Í þessari bók lærum við saman um tölur, rúmfræði og form, reikning, mælingar, tölfræði og hnitakerfi. Nú ert þú í stærðfræðispæjaraliði með Völu, Róberti og Mosa og lærir enn meira um allskonar stærðfræði. Góða skemmtun! 5585 Stærðfræðispjæjararnir Vala, Róbert, Blær og Mosi vilja gjarnan fá þig í lið með sér og halda áfram að rannsaka heim stærðfræðinnar. Í þessari bók skoðum við tölur, rúmfræði og form, reikning, mælingar, tölfræði og hnitakerfi. Ný rannsóknarefni í þessari bók eru meðal annars almenn brot, námundun, margföldun og deiling. Settu upp spæjaragleraugun og komdu í lið með okkur! Höfundar eru Bryndís Stefánsdóttir og Elín Margrét Kristinsdóttir Myndhöfundur er Bergrún Íris Sævarsdóttir VÆNTANLEGT

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=