Kynningarskrá 2023

SAMFÉLAGSGREINAR 61 YNGSTA STIG / MIÐSTIG LÍFSLEIKNI YNGSTA STIG / MIÐSTIG KYN, KYNLÍF OG ALLT HITT. – FYRIR YNGSTA OG MIÐSTIG Kyn, kynlíf og allt hitt er kynfræðslubók sem tekur til barna og fjölskyldna af öllum gerðum, kynjum og kynhneigðum þannig að öll börn og allar fjölskyldur ættu að geta speglað sig í bókinni Bókin er á myndasöguformi þar sem fylgst er með fjórum börnum fræðast um kyn og kynlíf með virðingu, traust, ánægju og réttlæti að leiðarljósi Bókin er mikilvægur leiðarvísir um líkama, kyn og kynverund fyrir börn Hún veitir nauðsynlegan grunn í kynfræðslu og býður þar að auki upp á samræður milli nemenda og kennara og gerir öllum kleift að koma á framfæri skoðunum sínum og upplifunum um leið og frætt er um virðingu, mörk, öryggi og ánægju Kennsluleiðbeiningar fylgja á vef Menntamálastofnunar LÍKAMI MINN TILHEYRIR MÉR – LEIKSKÓLI OG YNGSTA STIG Kynferðislegt ofbeldi á börnum á sér stað oftar og nær okkur en við höldum og er mjög skaðlegt Öll börn eiga rétt á vernd og þurfa að geta leitað til fullorðinna sem þau treysta og sem geta rætt við þau um kynferðisofbeldi, að það er ólöglegt og hvernig þau geta fengið hjálp „Líkami minn tilheyrir mér“ eru teiknimyndir í fjórum þáttum þar sem fjallað er um líkamann, mörk og kynferðisofbeldi Með myndunum fylgja samtalsspjöld og kennsluleiðbeiningar sem hugsaðar eru til að vinna með börnum á leikskóla Einnig fylgja efninu kennsluleiðbeiningar fyrir 1 – 4 bekk Efninu fylgir einnig sniðmát af bréfi ef skólar vilja senda forráðamönnum upplýsingar um fræðsluna NÝTT NÝTT

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=