Kynningarskrá 2023

SAMFÉLAGSGREINAR 60 „Ég veit“ er opið námsefni á vef fyrir leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla og um ofbeldi, misnotkun, einelti og réttindi barna Efnið er unnið samkvæmt aðalnámskrá leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla „Ég veit“ námsefnið er þróað af Salaby í Noregi í samstarfi við sérfræðinga þar í landi Efnið verður þýtt og staðfært á Íslandi 2023–2024 Byrjað verður á að þýða efnið fyrir 1 –4 bekk og leikskóla og opnað verður fyrir það haustið 2023 Efni fyrir eldri bekki og framhaldsskóla verður unnið á árinu 2024 Efnið fyrir leikskóla og 1 –4 bekk skiptist í sex hluta Að líða vel saman: Hvernig getur okkur liðið vel saman í skóla og leikskóla? Og hvernig getum við orðið vinir aftur þegar við höfum rifist? Í hlutanum „Að líða vel saman“ fræðast börnin um hvernig við getum komið á góðum skólabrag í leikskólanum og hvernig við getum talað um það við aðra ef við upplifum eitthvað erfitt Líkami minn tilheyrir mér: Öll börn eiga rétt á að ráða yfir eigin líkama Og það eru ákveðnir hlutir sem fullorðnir ættu aldrei að gera við líkama barna Verkefnin fjögur í hlutanum „Líkami minn tilheyrir mér“ gefa í sameiningu góða innsýn í viðfangsefnin „líkami minn“, „mörk“ og „ofbeldi“ og hvernig við getum fengið hjálp ef þörf krefur Hér eru sömu teiknimyndir og eru auglýstar hér fyrir ofan Réttur til að vera örugg: Öll börn eiga rétt á því að upplifa sig örugg, bæði heima og í leikskólanum Í þessum hluta er fjallað um mismunandi gerðir af líkamlegu og andlegu ofbeldi og hvernig við getum fengið aðstoð ef við upplifum eitthvað sem okkur finnst erfitt Hvað er barnavernd? Hver getur hjálpað þegar barn á erfitt heima? Hvað gerir barnavernd? Hér er hægt að læra meira um barnavernd og um annað fullorðið fólk sem getur hjálpað börnum Að segja frá: Hér er fjallað um spurningarnar Hvers vegna getur verið erfitt að segja öðrum hvernig okkur líður í raun og veru? Og hvers vegna gæti verið góð hugmynd að gera það samt? Tilfinningarnar mínar: Það er mikilvægt að þekkja og hafa orð yfir tilfinningar okkar til að geta talað um hvernig okkur líður Þá er auðveldara að koma orðum að því sem okkur sjálfum finnst og skilja hvernig öðrum líður Í hlutanum „Tilfinningar mínar“ læra börnin meira um tilfinningarnar gleði, sorg og hræðsla Væntanlegar eru fleiri teiknimyndir í þessum flokki um sjón, heyrn og húðina VÆNTANLEGT ÉG VEIT – VEFUR – VÆNTANLEGT – LEIKSKÓLI OG YNGSTA STIG

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=