Kynningarskrá 2023

31 ÍSLENSKA TÁKNMÁL ÖLL SKÓLASTIG TÁKNMÁL / ÖLL SKÓLASTIG BÆKUR Á TÁKNMÁLI Á þessum vef má finna bækur úr Smábókaflokki og bókaflokknum Komdu og skoðaðu þýddar á táknmál heyrnarlausra TÁKNMÁLSLEIKIR 1 OG 2 - CD Tvö kennsluforrit sem eru ætluð heyrnarlausum og heyrnar- skertum börnum á aldrinum 4–7 ára og foreldrum þeirra Á geisladiskinum eru verkefni bæði fyrir börn og foreldra UPP MEÐ HENDUR Verkefnabók í táknmáli fyrir börn sem vilja læra táknmál Í bókinni eru fjölbreytt verkefni til að lita, líma og leysa ýmsar þrautir Kennsluleiðbeiningar og talnatákn til ljósritunar eru á vef Upp með hendur – Vefur sem þjónar sama markmiði og samnefnd bók TÁKN MEÐ TALI – ORÐABÓK Orðabók með táknmyndum sem notaðar eru í boðskiptakerfinu Tákn með tali en TMT er tjáningarform ætlað heyrandi fólki sem á við verulega mál- eða talörðugleika að stríða Orðabókin skiptist í tvo hluta Í fyrri hlutanum er sagt frá uppbyggingu og tilgangi TMT ásamt ábendingum um innlögn og þjálfun Í seinni hlutanum er táknasafnið sjálft, alls 790 táknmyndir sem raðað er í nítján efnisflokka Heimilt er að ljósrita táknmyndirnar TÁKN MEÐ TALI - CD Tákn með tali (TMT) er tjáskiptaaðferð sem notuð er með einstaklingum með mál- og talörðugleika Aðferðin byggist upp á einföldum hreyfitáknum sem notuð eru á markvissan hátt til stuðnings töluðu máli TMT – VEFUR TMT-forritið er verkfæri fyrir fagfólk og aðra sem nota boðskiptakerfið Tákn með tali með skjólstæðingum sínum Því er ætlað að auðvelda þá miklu vinnu sem oft fylgir gerð náms- og kennsluefnis í tengslum við TMT Í forritinu eru rúmlega 1000 táknmyndir og 3005 orð Orðaforðinn byggist á Tákn með tali – orðabók sem gefin er út hjá Menntamálastofnun

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=