Kynlíf - Strákar

hálsinn eyrnasneplarnir snípurinn skapabarmarnir varirnar munnurinn olnbogabæturnar handakrikarnir tærnar rasskinnarnar brjóstin geirvörturnar typpið kviður nafli bak tær augnlok hendur handleggir gagnaugu annað ____________ annað ____________ Kynlíf KYNLÍF Á • Heilinn hugar að kynlífi á nokkurra mínútna fresti • Heilinn vekur hjá þér tilfinningar og hvatir • Heilinn geymir fantasíur, drauma og minningar … • Heilinn er aðalkynfærið … án heila væri ekkert kynlíf • En það væri fullt af kynlífi án typpis og píku ÖRVUNARPUNKTAR Erum við með kynfæri um allan líkamann? 49 V ið erum með fjölda staða á líkamanum sem gott er að láta snerta. Það er þó mjög mismunandi hve næmt fólk er og hversu vel það nýtur þess að vera snert. Flestir örvast kynferðislega við hlýja og blauta kossa. Brjóstin eru gjarnan talin með næmari stöðum kvenlíkamans og margir karlar örvast líka ef gælt er við geirvörtur þeirra. Flestir karlar verða æstir ef gælt er við liminn og það sama á við um snípinn hjá konum. Svo er fjöldi annarra staða á líkamanum sem geta vakið losta, en það getur verið mjög mismunandi hvað okkur finnst gott og hvernig við viljum láta snerta okkur. H var eru þínir næmustu staðir? Skrifaðu 1 við næmasta staðinn, 2 við þann næstbesta og þannig koll af kolli. Þú getur líka merkt inn á myndina eða bara svarað í huganum.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=