Kynlíf - Strákar

41 SPURNING DAGSINS: Hvernig læturðu vita að þú sért hrifin(n) af ein hverjum? Samskipti Goggi Ég veit það ekki. Stríði henni kannski. Fel skólatöskuna hennar eða eitthvað. Magnús Ég reyni að lenda með henni í hó pverkefnum eða eitthvað svoleiðis. Eða bið u m að fá að sjá heimaverkefnin hennar af því ég hafi ekki alveg skilið þau. Fríða Æ, ég bara þykist ekki sjá hann. Ef hann reynir að tala við mig, þá læt ég eins og ég hafi engan áhuga. Það virkar stundum. Helgi Ég passa að hlusta alltaf á það sem hún er segja. Ef hún segir eitthvað fyndið, þá hlæ ég og segi kannski hinum strákunum frá því sem hún sagði. Þeim finnst það ekki alltaf jafnfyndið og mér. Vigdís Síðast þegar ég var skotin í strák togaði ég í hárið á honum. Lára Ég segi honum bara alltaf frá því þegar mér finnst eitthvað gott um hann. Til dæmis ef hann fær hátt á prófi, þá dáist ég að honum. Ef hann lætur klippa sig, þá tala ég um hvað þetta fari honum vel. Eitthvað svona bara.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=