Kynlíf - Strákar

Jónína Ég var sú síðasta í klíkunni til að byrja. Ég var orðin 16 og þetta gerðist í bíó með vinkonum mínum. Ég var svo heppin að ein af þeim var með bindi í töskunni sinni, svo ég gat horft á afganginn af myndinni. Nína Það var í sumarbústaðarferð með frænku minni, sem er fjórum árum eldri en ég. Ég var 15 ára. Jú, mér brá soldið, en frænka mín vissi allt um þetta og hjálpaði mér. Hafdís Sem betur fer var mamma búin að undirbúa mig vel, svo þegar ég vaknaði einn morguninn með rauðan blett í náttkjólnum mínum vissi ég nákvæmlega hvað var að gerast. Ég var 13 ára. Linda Ég var ekki nema 11 ára og þetta gerðist í frímínútum í skólanum. Ég hljóp ein inn á klósett og tókst svo að kalla á vinkonu mína, sem sótti kennarann. Kennarinn róaði mig og þetta varð ekkert stórmál. SPURNING DAGSINS: Hvar og hvenær byrjaðir þú á túr? Stelpur 19

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=