Kynlíf - Stelpur

Snædís: Ég naut þess alltaf að vera með Hilmari, hann er yndislega næmur og ljúfur elskhugi og ég hafði alltaf gaman af kynlífi … en núna er kynlíf allt annað fyrir mér. Með Tantranálgun hef ég ekki bara upplifað kynferðislega fullnægingu heldur margar nýjar sæluvíddir sem eru ekki síðri. Samfarir eru orðnar að aukaatriði og ég fæ fullnægingu án þess að kynfærin komi þar nærri. Stundum upplifi ég langar sælustundir þar sem við Hilmar verðum eitt eða margar fullnægingar í röð sem gæla við mig frá toppi til táar. Nú finnst mér kynlíf vera spennandi ævintýraheimur þar sem allt getur gerst. Leifur lítur á sjálfsfróun sem losun … Leifur er 17 ára menntaskólanemi. Hann segist vera vanur að runka sér þrisvar til fjórum sinnum í viku. Hann er nýbyrjaður á föstu með stelpu sem heitir Lísa sem hann er mjög hrifinn af. Hann segir þau hafa gert ýmislegt skemmtilegt saman en þau hafa ekki haft samfarir. Gefum Leifi orðið. Snædís deilir reynslu sinni af tantra … Snædís og Hilmar eru búin að vera par í þrjú ár. Þau segja að kynlíf þeirra hafi verið gott og gefandi frá upphafi en þegar Snædís var orðin 20 ára og hafði aldrei fengið fullnægingu ákváðu þau að reyna Tantra yóga. Snædís segir frá. Kynlíf Linda Rún lýsir magnaðri sjálfsfróun … Linda Rún fékk fullnægingu í fyrsta skiptið þegar hún var 15 ára með sjálfsfróun. Hún hafði reyndar oft fundið fyrir smá hita og fiðringi í píkunni og leikið sér við snípinn og jafnvel stungið fingrum inn í leggangaopið. En hún hafði ekkert staldrað lengi við þessar æfingar framan af því snípurinn var svo viðkvæmur og óþægilegt að koma við hann – eiginlega of næmur. Linda Rún lýsir reynslu sinni. Arnar naut sín fyrst með karlmanni … Arnar er hommi og gerði sér grein fyrir því fyrir löngu en kom ekki út úr skápnum fyrr en í fyrra, þegar hann var 19 ára. Arnar varð snemma kynþroska og var farinn að fróa sér til nokkurrar ánægju um 13 ára aldur. Hann segist þó ekki hafa upplifað alvöru sælu fyrr en hann var með karlmanni í fyrsta skiptið. Gefum Arnari orðið. Arnar: Ég var búinn að reyna að vera með stelpum nokkrum sinnum. Mér líkaði það ekkert illa en ekkert vel heldur. Eitt kvöldið sat ég heima hjá Villa vini mínum og allt í einu sagði hann mér að hann væri hommi og að hann væri skotinn í mér. Mér brá rosalega og mér datt í hug að rjúka út og tala ekki við hann aftur. En ég sat áfram og við töluðum saman. Þegar Villi fór að lýsa tilfinningum sínum fattaði ég allt í einu að það var eins og hann væri að tala um mínar tilfinningar. Og það var ég sem allt í einu beygði mig yfir hann og kyssti hann. Það gerðist ekkert fleira þetta kvöld, en stuttu seinna fórum við að kela og allt í einu fann ég eitthvað sem ég hafði aldrei fundið með stelpu. Villi snerti mig þannig að heimurinn varð eins og stór blaðra full af tilfinningum sem bara þandist út endalaust og sveif með mig eitthvað út í geim. Það var loksins þá sem ég fann sjálfan mig. 55 Linda Rún: Ég lokaði mig inni í herbergi og setti geisladisk á. Svo lokaði ég bara augunum og strauk brjóstin, lærin og fór með alla athyglina á staðina sem ég var að snerta. Ég strauk snípinn laust og hægt þar til mér fannst ég finna hann þrútna og ég var orðin ótrúlega uppspennt. Svo strauk ég snípinn áfram og mér fannst ég vera að springa. Og svo sprakk ég eða eitthvað inni í mér sem þeyttist út um allt og ég fékk sæluhroll og svo var ég eins og lömuð. Leifur: Ég lít á sjálfsfróun sem nokkurs konar losun … það er auðvitað mögnuð tilfinning að fá’ða. Ég myndi líkja tilfinningunni við litla hitabombu sem byrjar í typpinu og hríslast út um kroppinn. Fullnæging varir í svona fimm til tíu sekúndur. Á eftir er maður allur slakur og fínn. Það er auðvitað allt öðruvísi að vera með stelpu. Við Lísa erum enn að læra hvort á annað en það er rosalega spennandi og allt öðruvísi vellíðan sem fylgir því að kela. „Sumir af vinum mínum hafa sofið hjá stelpum og að minnsta kosti tveir eða þrír monta sig af því að vera „góðir í rúminu“. Ég hef ekki sofið hjá og ég er skíthræddur um að ég sé lélegur í því. Hvernig get ég verið viss um að ég standi mig vel þegar það kemur loksins að því?“ Gunni Kæri Gunni. Hugtakið „góður í rúminu“ hefur enga merkingu, vegna þess að það er ekki það sama sem hentar öllum og þetta á bæði við um stráka og stelpur. Það sem einum finnst meiriháttar upplifun í kynlífi finnst öðrum kannski vont eða bara hundleiðinlegt. Þegar þú kynnist stelpunni sem þú vilt vera með lærið þið smátt og smátt hvort á annað og trúið hvort öðru fyrir því sem ykkur þykir skemmtilegt og gott. Þannig verðið þið góð hvort með öðru en þið skuluð vara ykkur á að miða ykkur við einhvern utanaðkomandi skala. Það er bara rugl. Dísa djúpvitra DÍSA DJÚPVITRA

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=