Kynlíf - Stelpur

SPURNING DAGSINS Hvað er klám? Hrefna Þegar kynlíf er gert að söluvöru, þá finnst mér vera klám á ferðinni. Þorvaldur Það er eflaust misjafnt eftir fólki. Það sem gengur fram af mér, það er klám í mínum augum. Svo er kannski eitthvað sem mér finnst sjálfsagður hlutur en öðrum gæti fundist argasta klám. Erla Mér finnst klám vera andstæðan við erótík. Erótík leggur áherslu á það fallega við kynlíf, klám leggur áherslu á það ljóta. Finnur Þegar fólk fær borgað fyrir kynlífsathafnir sem síðan á að selja öðrum. Guðrún Fyrir mér er það klám þegar kynlíf er slitið úr samhengi við tilfinningarnar og bara gert að líkamlegri athöfn. Halldór Klám er einhvers konar afskræming á kynlífi. Í stað þess að sýna það heilbrigt og jákvætt er verið að velta sér upp úr því neikvæða og sjúka. 52

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=