Komdu og skoðaðu bílinn

Hvað knýr bílinn áfram? Það er vélin í bílnum. Vélin þarf orku sem hún fær úr eldsneyti. Það getur verið bensín, dísilolía eða metangas. Eldsneytið er sett á sérstakan geymi í bílnum. Hvað gerist ef við gleymum að setja eldsneyti á bílinn? Eins og bíllinn þurfum við orku til að hreyfa okkur. Hana fáum við úr mat. Þegar við höfum ekki borðað lengi verðum við orkulaus. 5 Hvaðan kemur þetta garnagaul? Ég hlýt að vera svangur.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=