Kæra dagbók 1

40269 Námsefnið Kæra dagbók er samið fyrir nemendur með annað móðurmál en íslensku. Miðað er við nemendur á aldrinum 8–11 ára sem eru læsir á sínu móðurmáli en hafa litla eða enga kunnáttu í íslensku. Námsefninu er ætlað að uppfylla m.a. þau markmið aðalnám- skrár grunnskóla fyrir íslensku sem annað tungumál að nemandi geti • notað íslensku til að tjá hug sinn og þarfir í töluðu máli og skilja aðra • notað íslensku til að taka þátt í samræðum og leikjum og í daglegum samskiptum við börn og fullorðna • náð athygli viðmælanda og byrjað og lokið samtölum • heilsað og kvatt og látið í ljós þakklæti á viðeigandi hátt eftir aðstæðum • áttað sig á íslenskum kurteisisvenjum og fengið og gefið samþykki og leyfi • gefið upplýsingar um sjálfan sig og fjölskyldu • spurt og beðið um útskýringu á orðum og orðatiltækjum Höfundur er Jóhanna G. Kristjánsdóttir. Teikningar eru eftir Írisi Auði Jónsdóttur. Efnið er fáanlegt á hljóðbók. KÆRA D AGBÓ K

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=