Íslendingaþættir

7 1. Brands þáttur örva N ú er frá því sagt að á einu sumri kom til Noregs utan af Íslandi Brandur sonur Vermundar í Vatnsfirði. Hann var kallaður Brandur hinn örvi . Var það sannnefni . Brandur lagði skipi sínu inn til Niðaróss. Þjóðólfur skáld var vinur Brands og hafði margt sagt Haraldi konungi frá Brandi, hve mikill ágætismaður hann var og vel að sér. Þjóðólfur hafði sagt að honum þætti augljóst að enginn annar maður væri betur til konungs fallinn á Íslandi vegna örleika hans og stórmennsku. Hann hefur sagt konungi margt frá örleikum Brands og mælti konungur: „Það skal ég nú reyna,“ segir hann. „Gakktu til hans og biddu hann að gefa mér skikkju sína.“ Þjóðólfur fór og kom inn í skemmu þar sem Brandur var fyrir. Hann stóð á gólfinu og mældi léreft. Hann var í skarlatskyrtli og skarlatsskikkju utan yfir honum og hafði losað um skikkju- böndin til að eiga auðveldara með vinnuna. Hann hafði öxi gullrekna í handarkrikanum. Þjóðólfur mælti: „Konungur vill fá skikkjuna að gjöf.“ Brandur hélt fram verkinu og svaraði engu, en hann lét skikkjuna falla af sér og tekur Þjóðólfur hana upp og færir konungi og spurði konungur hvað þeim hefði farið á milli. Hann segir að Brandur hefði ekki sagt orð, segir konungi síðan hvað hann var að gera og hvernig hann var búinn. hinn örvi merkir hinn örláti, gjafmildi sannnefni merkir að nafnið gaf rétta mynd af Brandi örleiki merkir örlæti, gjafmildi skarlatskyrtill er kyrtill úr vönduðu ullarefni, oftast rauðu gullrekin merkir skreytt með gulli

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=