Íslendingaþættir

81 Upprifjun: 1. Hvar settist Geirmundur að á Íslandi? Skoðið landakort. Hvar eru Geirmundarstaðir? 2. Geirmundur átti fjögur bú sem hann lét þræla sína annast um. Hvar voru þau? 3. Hvað skyldi hafa verið margt í heimili hjá Geirmundi á Geirmundarstöðum? Til umræðu: • Ræðið landnám Íslands. Samkvæmt sögum var Ísland óbyggt fram til ársins 874. Ýmislegt bendir þó til að hér hafi menn verið sestir að fyrir þann tíma. Hvaðan koma slíkar vísbendingar? • Teljið nú saman hve marga menn Geirmundur hefur á sínum snærum. Þetta fólk hefur væntanlega komið með honum frá Noregi. Auk þess varð hann að hafa með sér alls kyns farangur. Hve mörg skip skyldi hann hafa þurft til að flytja allt þetta fólk og varninginn?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=