Íslendingaþættir

56 Auðun hitti Harald konung S íðan lætur Auðun í haf og kemur í Noreg. Hann lætur flytja upp varning sinn og þurfti nú meira að hafa fyrir því en í fyrra sinnið er hann var í Noregi. Hann fer síðan á fund Haralds konungs og vill efna það sem hann lofaði honum áður en hann fór til Danmerkur. Hann heilsar konungi kurteislega. Haraldur konungur tók vel kveðju hans, „og sestu niður,“ segir hann, „og drekktu hér með okkur.“ Og hann gerir það. Þá spurði Haraldur konungur: „Með hverju launaði Sveinn konungur þér dýrið?“ Auðun svarar: „Herra, hann þáði það af mér.“ Konungur sagði: „Það hefði ég gert líka. Hvað fleira fékkstu í laun frá honum?“ Auðun svarar: „Hann gaf mér silfur til að fara til Rómar.“ Þá segir Haraldur konungur: „Mörgum manni gefur Sveinn konungur silfur til að fara til Rómar eða annarra hluta þótt ekki færi þeir honum gersemar. Hvað fékkst þú fleira?“ „Hann bauð mér,“ segir Auðun, „virðingarstöðu við hirðina.“ „Það var vel gert,“ segir konungur, „og hvað fékkstu fleira?“ Auðun segir: „Hann gaf mér knörr hlaðinn af varningi þeim sem er kominn hingað til Noregs.“ „Það var höfðinglega gert,“ segir konungur, „en ég hefði líka gert það. Hvað fékkstu fleira?“ knörr er skip, ætlað til úthafssiglinga

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=