Íslendingaþættir

53 sveinn konungur launar fyrir bjarndýrið U m vorið býður konungur Auðuni að vera með sér framvegis og segist ætla að gera hann að yfirmanni við hirðina. Auðun segir: „Guð þakki þér, herra, allt sem þú vilt gera fyrir mig en nú vil ég fara aftur til Íslands.“ Konungur segir: „Þetta þykir mér undarlegt val.“ Auðun mælti: „Ég get ekki hugsað mér, herra,“ segir hann, „að ég hafi það hér mjög gott hjá þér en móðir mín gangi um betlandi úti á Íslandi. Því nú eru búnir þeir peningar sem ég borgaði fyrir hana áður en ég fór af Íslandi.“ Konungur svarar: „Þetta er vel sagt,“ segir hann, „og muntu verða gæfumaður. Þetta er eina ástæðan sem þú gast gefið upp fyrir því að fara héðan sem mér mislíkar ekki. Vertu nú með mér þar til skip búast til ferðar.“ Hann gerir svo. Einn dag þegar leið á vorið gekk Sveinn konungur ofan á bryggjur og voru menn þá að búa skip til ýmissa landa, í Austurveg eða Saxland , til Svíþjóðar eða Noregs. Þá koma þeir Auðun að einu skipi fögru og voru menn að búa skipið til brottferðar. Þá spurði konungur: „Hvernig líst þér, Auðun, á þetta skip?“ Hann svarar: „Vel, herra.“ Konungur mælti: „Þetta skip vil ég þér gefa og launa bjarndýrið.“ í Austurveg eru löndin fyrir sunnan eða austan Eystrasalt Saxland eru landsvæði í norðanverðu Þýskalandi

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=