Íslendingaþættir

46 4. Auðunar þáttur vestfirska Auðun keypti bjarndýr A uðun hét fátækur maður, ættaður af Vestfjörðum. Hann vann ýmis verk fyrir stýrimann sem hét Þórir og í staðinn fékk hann að fara með honum til útlanda. Áður en hann fór lagði hann fyrir hluta af launum sínum fyrir gamla móður sína, það nægði fyrir mat og húsnæði fyrir hana í þrjú ár. Og nú fara þeir frá landi og gengur ferðin vel og var Auðun um veturinn eftir með Þóri stýrimanni. Hann átti bú á Mæri í Noregi. Og um sumarið eftir fara þeir til Grænlands og eru þar um veturinn. Þar gerist það að Auðun kaupir þar bjarndýr eitt, gersemi mikla, og gaf þar fyrir allt sem hann átti. Og um sumarið eftir fara þeir aftur til Noregs og gekk ferð þeirra vel. Auðun hefur dýr sitt með sér og ætlar að fara suður til Danmerkur á fund Sveins konungs og gefa honum dýrið. Og þegar hann kom til Noregs þar sem Haraldur konungur var fyrir þá fer hann í land. Hann leiðir eftir sér dýrið og leigir sér herbergi. Haraldi konungi var sagt að þar var komið bjarndýr, gersemi mikil, og að íslenskur maður eigi það. Konungur sendir strax menn eftir honum. Og þegar Auðun kom fyrir konung heilsar hann konungi kurteislega. Mæri er fylki, landsvæði í Noregi gersemi merkir dýrgripur, eitthvað mjög verðmætt

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=