Íslendingaþættir

33 Þorstein skelk héðan af og er hér sverð að ég vil gefa þér í tilefni af þessu nýja nafni.“ Þorsteinn þakkaði honum. Svo er sagt að Þorsteinn gerðist hirðmaður Ólafs konungs og var með honum síðan og féll á Orminum langa með öðrum köppum konungs. Upprifjun: 1. Það kom í ljós að Þorsteinn Þorkelsson hafði brotið gegn boðum konungs. Hvaða reglu braut hann? 2. Hvað sagði Ólafur konungur þegar Þorsteinn viðurkenndi að hafa brotið reglurnar? 3. Ólafur konungur gaf Þorsteini nafn. Hvað hét hann eftir það? Til umræðu: • Í kaflanum kemur fram að Þorsteinn bjargar sér á snjallan hátt frá óþægilegri heimsókn. Ræðið nú til hvaða ráðs hann greip til að losna og hver bjargaði honum. • Þorsteinn fékk viðurnefni eftir þetta ævintýri. Ræðið um slíkar nafngiftir. Þær voru algengar í fornsögum. Nefnið dæmi. • Hvað var Ormurinn langi? Leitið upplýsinga t.d. á netinu.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=