Íslendingaþættir

32 Ólafur konungur gaf Þorsteini auknefni E n morguninn eftir stóðu menn upp. Gekk konungur til kirkju og hlýddi á messu. Eftir það var gengið til borða. Konungur var ekki sérlega blíður. Hann tók til orða: „Hefur nokkur maður farið einn á salerni í nótt?“ Þorsteinn stóð þá upp og féll fram fyrir konung og sagðist hafa brotið gegn boði hans. Konungur svarar: „Mér þykir það ekki svo alvarleg yfirsjón , en varðst þú var við nokkuð?“ Þorsteinn sagði þá frá öllu sem hafði komið fyrir hann um nóttina. Konungur spurði: „Hvers vegna baðstu púkann að æpa?“ „Það var vegna þess, herra, að ég þóttist vita það, þar sem þú hafðir varað alla menn við að fara á salernið einir, en púkinn kom upp, að ég væri í hættu, en ég gerði ráð fyrir að þú mundir vakna, herra, þegar hann æpti og þá mundi ég bjargast ef þú heyrðir til hans.“ „Það var líka þannig,“ sagði konungur, „að ég vaknaði við og svo vissi ég hvað fram fór og því lét ég hringja að ég vissi að ekkert annað mundi hjálpa þér. En varðst þú ekki hræddur þegar púkinn tók að æpa?“ Þorsteinn svarar: „Ég veit ekki hvað hræðsla er, herra.“ „Var enginn ótti í brjósti þér?“ sagði konungur. „Reyndar var það svo,“ sagði Þorsteinn, „að við síðasta ópið lá við að ég yrði hræddur.“ Konungur svarar: „Nú skal bæta við nafn þitt og kalla þig alvarleg yfirsjón merkir alvarleg mistök

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=