Íslendingaþættir

28 3. Þorsteins þáttur skelks Óvenjulegur næturgestur Ó lafur konungur var um sumar á ferð um Oslóarfjörðinn og víðar. Meðal annars gisti hann í bæ þeim sem heitir á Reimi. Með honum voru mjög margir menn. Þá var sá maður með konungi sem hét Þorsteinn Þorkelsson, íslenskur maður, og hafði komið til konungs um veturinn áður. Um kvöldið er menn sátu yfir drykkjuborðum talaði Ólafur konungur um að enginn af hans mönnum skyldi fara einn í salerni um nóttina því að hver sem þess þyrfti ætti fá annan með sér, annars sagði hann að illa gæti farið. Drekka menn nú vel um kvöldið, en þegar drykkjuborð höfðu verið tekin niður fóru menn að sofa. Og þegar leið á nóttina vaknaði Þorsteinn Íslendingur og þurfti á salerni, en sá sem var næst honum svaf fast svo að Þorsteinn vildi ekki vekja hann. Stendur hann þá upp og kippir skóm á fætur sér og setur yfir sig þykkan feld og gengur til salernisins. Það var stórt hús svo að ellefu menn gátu setið hvorum megin. Sest hann á ystu setu . Og er hann hefur setið nokkra stund sér hann að púki kemur upp á innstu setu og sat þar. Þorsteinn mælti þá: „Hver er þar kominn?“ Púkinn svarar: „Hér er kominn Þorkell hinn þunni er féll með Haraldi konungi hilditönn.“ „Hvaðan kemur þú nú?“ sagði Þorsteinn. Hann sagðist vera nýkominn úr helvíti. „Hvað er að frétta þaðan?“ spurði Þorsteinn. Hinn svarar: „Um hvað viltu spyrja?“ Sest hann á ystu setu merkir að hann sest á fyrstu setuna þegar inn var komið

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=