Íslendingaþættir

17 Ívar svaraði: „Þetta vil ég, herra, og haf þökk fyrir.“ Og nú gera þeir svo að jafnan þegar konungur situr ekki yfir vandamálum þá talar hann oft um þessa konu við Ívar. Og þetta ráð þeirra bar árangur og létti Ívari von bráðar og minnkaði harmur hans. Gladdist hann eftir þetta og kemur í samt lag sem fyrr hafði verið um skemmtun hans og gleði. Og er hann með Eysteini. Rifjið upp: 1. Hvers vegna líkaði Þorfinni, bróður Ívars, ekki vistin hjá Eysteini konungi? 2. Hvaða skilaboð átti Þorfinnur að bera til Íslands frá bróður sínum? 3. Hvað gerði hann svo þegar hann kom til Íslands? 4. Hvaða ráð var það sem dugði loks til að konungi tækist að hjálpa Ívari upp úr þunglyndinu? Til umræðu: • Í sögunni er talað um að Ívar hafi verið stórættaður að kyni. Hvað merkir þetta og hvað þýddi það í raun? • Hvað finnst ykkur um það hvernig Þorfinnur rak erindi bróður síns á Íslandi? Hver gæti verið skýringin á þessu uppátæki hans? • Ræðið aðferð Eysteins konungs sem hann notar til að ná Ívari upp úr þunglyndinu. Hvað kallast þetta á máli fagmanna? • Þegar sagt var til forna að einhver vildi „fara út“ merkti það að fara til Íslands. Hvernig gæti staðið á því? • Hver var þessi Eysteinn? Hvenær var hann konungur í Noregi?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=