Íslendingaþættir

16 Ívar svaraði: „Þetta er mjög erfitt mál, herra. Bróðir minn á nú konuna.“ Þá mælti konungur: „Hættum þá að hugsa um það,“ segir hann. „Mér kemur ráð í hug. Eftir jólin mun ég fara á veislur og komdu með mér og muntu þar sjá margar fallegar konur, og ef þær eru ekki af konungsættum þá mun ég fá þér einhverja þeirra.“ Ívar svaraði: „Herra, svo þunglega er komið mínu máli að jafnan er ég sé fagrar konur þá minna þær mig á þessa konu og verður harmur minn því meiri.“ Konungur mælti: „Þá mun ég fá þér mannaforráð og eigur, eins og ég hef boðið þér áður, og skemmtir þú þér við það.“ Hann svaraði: „Ekki uni ég því.“ Konungur mælti: „Þá fæ ég þér lausafé og ferð þú verslunar- ferðir til þeirra landa sem þú vilt.“ Hann sagðist ekki vilja það. Þá mælti konungur: „Vandast nú heldur málið því að ég hef leitað allra ráða sem ég kunni. Og er nú eftir einn hlutur og er sá lítils verður hjá þessum sem ég hef boðið þér en þó er erfitt að segja til um hvað dugir best. Komdu til mín á hverjum degi, þegar máltíðum er lokið og ég er ekki að sinna nauðsynlegum málum, og mun ég tala við þig. Skulum við ræða um konu þessa eins og þú vilt og þér dettur í hug og mun ég gefa mér tíma til þess því að það gerist stundum að harmur manna léttist ef um hann er rætt. Og það skal einnig fylgja þessu að aldrei skaltu fara gjaflaust í brott frá mínum fundi.“ fara á veislur vísar til þess að konungur fór um landið og lét veita sér og mönnum sínum mat og húsaskjól um tiltekinn tíma (yfirleitt ekki lengur en þrjá daga) mannaforráð merkir veraldleg völd, stjórnunarstaða

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=