Ísland - Hér búum við - vinnubók
2 Áður en við hefjumst handa Lestu vel Gættu þess að lesa vel í lesbókinni áður en þú byrjar að vinna í vinnubókinni. Í vinnubókinni skaltu svo lesa öll fyrirmæli vel áður en þú hefst handa. Notaðu bækur og kort Þegar þú vinnur í vinnubókinni getur verið nauðsynlegt að notast við lesbókina sem fylgir eða kort, hvort sem er kortabók eða kort í tölvu. Í lesbókinni eru einnig góð kort. Skrifaðu skýrt Skrifaðu eins skýrt og greinilega og þú getur í vinnubókina. Gættu þess einnig að skrifa ekki of stóra stafi. Ef þér finnst of lítið pláss til að skrifa í kortin getur þú skrifað fyrir utan kortið og dregið línu þaðan á staðinn. Hjálpist að Þegar verkefni eru viðamikil eða seinunnin getur verið gott að hjálpast að. Önnur og léttari verkefni skaltu leysa af eigin rammleik áður en þú leitar hjálpar.
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=