Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

9 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Ísland Bls. 4–5 UM OPNUNA Hvað vita nemendur um landið okkar Ísland? Á þessari opnu er upplagt að skoða myndina af Íslandi sem tekin er með gervihnetti og sýnir Ísland í vetrarbúningi. TENGSL VIÐ AÐALNÁMSKRÁ – HÆFNIVIÐMIÐ VIÐ LOK 7. BEKKJAR Að nemandi geti: • gert grein fyrir einkennum og stöðu Íslands í heiminum í ljósi legu og sögu landsins, breytilegrar menningar, trúar og lífsviðhorfa. HUGTÖK KAFLANS Mikilvægt er að vinna með og ræða hugtök sem koma fyrir í kaflanum áður kaflinn er lesinn. Hugtök sem mætti skoða vel eru t.d. Gervihnöttur, loftmynd, landafræði, sambúð manns og náttúru ÁÐUR EN VINNA HEFST, UMRÆÐUR OG KVEIKJUR Kveikjur • Varpa upp mynd af opnunni. Hvað sjá nemendur á myndinni? Þar sem snjór er yfir öllu sést vel hvernig landið liggur, dalir, fjöll og strandlengjan. Umræður • Hvað er sérstakt við lögun landsins? • Hvað vita þau um landið? Skrá það sem nemendur nefna. • Hvers vegna er ekki snjór alls staðar á myndinni? • Af hverju sjáum við aðeins tvö vötn á myndinni? (Þingvallavatn og Löginn). • Hvernig er veðrið á þessari mynd? (skýjafar, hitastig, árstíð). ÚRVINNSLA EFNISINS 1. Ísland landið okkar . Nemendur búa saman til lista yfir það sem nemendur vita um Ísland og gera svo aftur lista í lok vinnu með efnið. Hvað vita nemendur meira um landið okkar í lok vinnunnar?

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=