Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

8 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 Mikilvægt er að námsmatið sé fjölbreytt og gefi heildstæða mynd af hæfni nemandans. Sem dæmi um námsmat má nefna leiðsagnarmat, jafningjamat og sjálfsmat. • Leiðsagnarmat gefur upplýsingar um hvaða aðstoð nemendur þurfa og hvernig örva megi þá til framfara. Mikilvægt er að endurgjöfin sé stöðug meðan á náminu stendur svo námið verði nemendum sem árangursríkast. • Sjálfsmat og jafningjamat veitir kennurum upplýsingar sem ekki væri aflað með öðrum hætti en krefst ábyrgrar afstöðu og skilnings nemandans á sjálfum sér og öðrum. Með sjálfsmati leggur nemandi mat á eigin hæfni en með jafningjamati á hæfni samnemenda sinna. • Verkmöppur: Nemendur ættu að fá tækifæri til að halda til haga völdum verkefnum sem sýna þekkingu, leikni og hæfni þeirra en slíkt má gera í verk- möppum, hvort heldur sem er áþreifanlegum eða rafrænum. Úr verkmöppum er hægt að velja brot af úrlausnum nemenda er gefa sýnishorn af þeim mark- miðum sem þeir hafa náð. Á vef Ingvars Sigurgeirssonar um kennsluaðferðir og námsmat má lesa sér frekar til um ólíkar aðferðir; https://notendur.hi.is/ingvars/kennsluadferdir/kennsluadferdirnar.htm

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=