Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar
7 Ísland hér búum við | Vinnublöð | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 VINNUBLAÐ 7 Að leita í kortabók Hvar er Akureyri? Margir fara til Akureyrar á skíði. En hvernig kemst maður að því hvar Akureyri er? Byrjaðu á því að finna kortabók. Finndu svo Íslandskort. Farðu svo í nafnaskrána aftast í bókinni. Þar eru öll staðarheiti í stafrófsröð. Akureyri er meðal þeirra staða sem byrja á A. Fyrir aftan nafnið eru tölustafir. Það er blaðsíðan eða opnan þar sem hægt er að finna Akureyri. Á eftir blaðsíðunni er bókstafur og tala og er það reiturinn sem finna má Akureyri. Finndu fyrst þessa fimm staði sem valdir hafa verið en svo velur þú fleiri staði sem þig langar að finna. Finndu eftirfarandi staði í kortabók. Staður Blaðsíða Bókstafur Tölustafur Akureyri Vík í Mýrdal Egilsstaðir Bolungarvík Borgarnes
Made with FlippingBook
RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=