Ísland, hér búum við - Kennsluleiðbeiningar

7 Ísland, hér búum við | Kennsluleiðbeiningar | © Menntamálastofnun 2019 | 7665 hópa vinna kafla og kynna svo fyrir hinum með veggspjöldum, kynningu á töflu eða hvaðeina sem kennara dettur í hug. Hægt er að nota vinnubók jafnt sem heima- eða tímavinnu nemenda. Ekki er úr vegi að láta nemendur vinna upp úr fleiri heimildum en lesbókinni. Þegar hópverkefni eru unnin er mikilvægt að kennari setji nemendum skýrar leikreglur svo þeir viti nákvæmlega til hvers er ætlast. Til að ná fram þeim hæfniviðmiðum sem fengist er við hverju sinni eru fjölbreyttar kennsluaðferðir æskilegar. Kennarinn verður að kynna sér mismunandi kennsluað- ferðir og nota þær aðferðir sem henta best og hæfa nemendahópi og þroska nem- enda hverju sinni. Undir hverjum kafla fyrir sig í kennsluleiðbeiningum eru tillögur að kveikjum og viðbótarverkefnum til að vinna frekar með efnið á fjölbreyttan hátt. Verkefnin eru samin með það í huga að dýpka skilning á efninu enn frekar. Kennsluaðferðir til að styðjast við geta m.a. verið: • Umræðu- og spurnaraðferðir sem þjálfa samræðu og gagnrýna hugsun. • Hópvinna getur alið af sér samkennd, samræður, tjáningu og dýpri skilning, ásamt því að auka skilning á viðhorfum og skoðunum annarra. Til eru ýmsar útfærslur af hópvinnu og má þar nefna söguaðferðina, þemanám og land- námsaðferðina. • Leitaraðferðir henta vel til að kynna nemendum vísindaleg vinnubrögð og þjálfa þá í að afla upplýsinga og vinna úr þeim með skipulögðum hætti. Dæmi um slíkar aðferðir eru heimildavinna, vettvangsferðir og viðtöl. Námsmat Kennsla, nám og námsmat mynda eina heild. Mikilvægt er að námsmatið, líkt og verkefni, sé fjölbreytt og endurspegli sem best færni nemenda á ólíkum sviðum. Með fjölbreyttu námsmati er líklegast að ólíkum þörfum nemenda sé mætt. Námsmat er hluti af náms- og kennsluferlinu og skipulagt sem mest í samræmi við námskrá, hæfniviðmið og viðfangsefni. Með því að nýta þau fjölbreyttu verkefni sem finna má í hverjum kafla bókarinnar fyrir sig er stuðlað að því að nemendur nálgist efnið frá mörgum sjónarhornum. Mikilvægt er að leggja reglulega mat á vinnu nemenda þegar um símat er að ræða. Það getur hvatt þá til dáða. Þegar stærri verkefni eru metin, hvort sem um einstaklings- eða hópaverkefni er að ræða, ber að hafa í huga mat á vinnu einstakra nemenda annars vegar og hópsins í heild hins vegar.

RkJQdWJsaXNoZXIy MjIxNzc=